top of page


Hvað hefur þú að segja á netinu?
Stundum þoli ég ekki Facebook. Mér finnst hún alger tímaþjófur og draga úr eðlilegum samskiptum milli fólks. Ég sakna þess að detta inn í kaffi hjá öðrum og að aðrir detti inn í kaffi hjá mér, að eiga samskipti augliti til auglitis en ekki á þessari andlitsbók á veraldarvefnum. Ég er alveg sek um að hanga alltof mikið á þessari vefrænu andlitsbók og eiga samskipti við fólk í gegnum hana. Vitið þið, mér finnst það ekkert fullnægjandi samskiptaform og mig langar að það breytist
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Ofbeldi lýsir sér svona
Ertu í ofbeldissambandi? Oft er því þannig farið að konur átta sig ekki á því að þær eru í sambandi þar sem makinn beitir þær ofbeldi, bæði líkamlegu og andlegu. Sterkustu konur, með mjög góða sjálfsvirðingu, lenda í þessum samböndum rétt eins og þær sem eru brotnar. Það er mikilvægt að þekkja hvernig ofbeldismenn hegða sér. Þeir virðast hafa þróað með sér ákveðna uppskrift og sumir fara svona í gegnum mörg sambönd og brjóta niður konu eftir konu. Á heimasíðu Kvennaathvarfsin
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Er sýndarveruleikinn að taka líf þitt yfir?
Geturðu hætt í miðjum tölvuleik til að sinna þínum nánustu? Lokað Facebook, Instagram og Snapchat hvenær sem er? Ef ekki, getur verið að þú hafir þróað með þér tölvufíkn, eða að þú notir sýndarveruleikann til að flýja raunheima? Ég velti því fyrir mér hvar raunveruleikinn og sýndarveruleikinn rekast á og hvar mörkin liggja þar á milli. Erum við að tapa raunveruleikaskyninu með því að vera of mikið í sýndarveruleika? Koma börnin á undan Facebook eða þurfa þau að bíða? Fær maki
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


34 einkenni breytingaskeiðs kvenna
Eins og hefur ekki farið framhjá neinum lesanda er ég miðaldra kona á þessu blessaða blómaskeiði sem heitir breytingaskeið. Það fer mörgum sögum af þessu skeiði og ég hef heyrt svo dásamlegar setningar eins og: „Þetta er það skeið sem konan fer fyrst að blómstra og breyta til í lífi sínu á þann hátt sem henni þykir best.“ Jú, jú, ég get alveg tengt við þessa setningu. Ég hef alveg blómstrað um einhver 30 kíló og gert allskyns breytingar mér til góða, eins og að sleppa brjósta
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Hamingja er hugarástand
Smá hugleiðing um hamingjuna. Oft heyri ég fólk tala um að það verði hamingjusamt þegar það eignast þetta eða klárar eitthvað, eða þegar makinn er eins og það vill, eða börnin útskrifast, eða… Einu sinni stóð ég í þessari meiningu sjálf! Ég gerði þannig óraunhæfar kröfur til hluta, atburða og fólks og fann óhamingjuna en ekki hamingjuna. Svo kviknaði ljós í hjartanu og ég fattaði að hamingjan kom innan frá! Hamingjan bjó í hjarta mér. Það eina sem ég þurfti að gera var að ley
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Þekkir þú einkenni meðvirkni?
Meðvirkni er orð sem flestir hafa heyrt og mjög margir nota, en vita allir hvað meðvirkni er og hvernig hún lýsir sér? Ég hef heyrt fólk tala um að það sé meðvirkni að vera góður við aðra. Ég hef líka heyrt fólk segja að ef maður er meðvirkur þá komi maður illa fram, og allskonar fleiri lýsingar. Eins og ég skil meðvirkni er hún ástand þar sem einstaklingur er farinn að skaða sjálfan sig við að bjarga öðrum, og einnig einstaklingur sem getur ekki sett heilbrigð mörk heldur ka
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Gerðu haustið töfrandi
Haustið er uppáhaldsárstíðin mín. Litir náttúrunnar eru aldrei fegurri og ferskleiki andvarans meiri. Ég elska rökkrið sem gefur mér tilefni til þess að kveikja á kertum og skapa hlýlega tilveru innanhúss. En það eru ekki allir sammála mér. Sumum finnst haustið afskaplega erfitt og leiðinlegt og þola ekki myrkrið sem hellist yfir og tilhugsunina um ískaldan veturinn með öllum sínum veðurtilbrigðum. Hér eru nokkrar tillögur fyrir þá sem ekki kunna að meta haustið um það hverni
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Umsagnir um Nýtt upphaf, frá streitu til kyrrðar
Frá árinu 2019 hafa fjölmargir tekið þátt í námskeiðinu Nýtt upphaf, frá streitu til kyrrðar. Hér eru umsagnir þátttakenda, en meðaleinkunn námskeiðsins í 30 umsögnum er 9,6 af 10. Tanja Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur „Þetta námskeið hefur gefið mér rosalega mikið. Ég er komin með verkfæri núna sem ég get nýtt mér heima til þess að slaka á þegar ég finn fyrir kvíðanum. Kristín er mikill fagmaður og maður hlakkar alltaf til þess að mæta í tímana. Ég kem miklu sterkari en á
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Fíklar eru líka fólk
Málefni fíkla og aðstandenda þeirra standa mér nærri hjarta. Ég hef horft á eftir alltof mörgum deyja af völdum fíknisjúkdómsins og séð hversu ljót sú veröld, undirheimarnir, er. Þegar ég starfaði sem ráðgjafi fyrir unga fíkla og foreldra þeirra heyrði ég sögur sem voru svo átakanlegar og ljótar að flestum dettur ekki í hug að þær gerist í alvöru, þær hljóta að vera bara í bíómyndum. Heimur fíkils er bæði harður og ljótur og heimur aðstandenda fíkla er fullur af sorg og ótta.
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Efldu sjálfsmynd barnsins þíns
Ráð til foreldra sem nýtast til að efla sjálfsmynd barna: Foreldrar þekkja börnin sín best og leggja sig alla fram við að gefa þeim gott veganesti út í lífið. Mikilvægt er að foreldrar hafi gott sjálfstraust og hlusti á innsæi sitt við uppeldi barna sinna. Foreldrar eru mikilvægustu fyrirmyndir barna sinna því börn læra af því sem fyrir þeim er haft og því geta foreldrar byggt upp sterka sjálfsmynd hjá börnum sínum með eigin athöfnum. Börnin heyra og sjá hvernig foreldrar bre
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Mín leið til að auka lífsgæði mín sem vefjagigtarsjúklingur
Ég er greind með illvíga vefjagigt og hef unnið hörðum höndum að því að læra að lifa með henni og sætta mig við að ég mun lifa með þennan sjúkdóm alla mína ævi. Það hafa komið tímabil þar sem ég stend ekki undir mér, er verkjuð í hverri taug og frumu líkamans, með algert svartnætti í hausnum og hefur fundist lífið lítið spennandi. Ég þurfti að hætta að vinna um tíma vegna þreytu og verkja og mátti ekki við neinu, þá fór allt í klessu og einkennin versnuðu og versnuðu. Ég hef
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Kona, ertu að sinna þér vel?
Nú þegar farið er að skyggja, haustlægðirnar í svaka stuði og dimmur, langur íslenskur vetur framundan er mikilvægt að hugsa extra vel um sig. Hvernig getur þú hugsað betur um þig? Jú, á margan hátt. Fyrsta skrefið er að horfast í augu við að þú ert eina manneskjan sem þú þarft að lifa með allt þitt líf. Ó já, það eitt og sér ætti að duga til þess að setja þig í fyrsta sæti og passa upp á að þér líði vel og að þú sért glöð og hamingjusöm, gerir skemmtilega hluti og notir þína
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


10 einföld ráð til ykkar
Janúar er gjarnan markmiða- eða áramótaheitamánuður. Fólk lítur yfir farinn veg og íhugar hvað það er sem það vill afreka á nýju ári. Eru markmiðin alltaf raunhæf og íhugar fólk hvernig það getur stutt sjálft sig í að ná árangri? Flest höfum við heyrt að það sé miklu farsælla að skrifa niður markmið sín og það er alveg rétt, en að mínu mati er leiðin að þeim mikilvægust. Hér á eftir koma nokkrar leiðir sem nýtast til þess að ná betri árangri í að uppfylla markmið sín. Einföld
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Fallegasta umsögnin er frá ófæddum dreng
Fékk leyfi til að segja frá þessu: Hjá mér hefur verið ófrísk kona í dáleiðslumeðferð og er hún nú í jóga nidra æfingabúðum. Konan er komin 31 viku á leið og fór í þrívíddarsónar. Barnið sneri höfðinu að fylgjunni, eins og það hefur gert í hvert sinn sem hún hefur farið í sónar. Ljósmóðirin stakk þá upp á að foreldrarnir spiluðu tónlist, því þá væri algengt að börn í móðurkviði sneru sér við… nei, ekkert gerðist! Móðirin ákvað þá að kveikja á dáleiðsluupptöku sem hún notar he
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read
Heilbrigð sjálfsmynd barna
Heilbrigð sjálfsmynd er sterkasta vopn hvers einstaklings til þess að takast á við þær áskoranir sem lífið býður upp á. Börn með sterka sjálfsmynd: Börn sem líður vel í eigin skinni eiga auðveldara með að standast neikvæðan hópþrýsting, brosa oftar og njóta lífsins. Þessi börn eru bjartsýn, hugsa í lausnum og hafa gaman af að leysa úr þeim verkefnum sem fyrir þau eru lögð. Þau treysta umhverfi sínu og segja frá þegar eitthvað gerist sem þeim finnst óþægilegt. Börn með brotna
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Fylltu líf þitt af hamingju
Hver vill ekki auka hamingjustuðulinn sinn? Hér á eftir koma nokkrar hamingjuaukandi aðferðir. Þetta eru allt aðferðir sem ég hef notað sjálf og aðferðir sem ég hef notað sem meðferðaraðili. Þessar aðferðir koma mikið úr fræðum jákvæðrar sálfræði og hugrænnar atferlismeðferðar. Aðferðir þessar hef ég notað á sjálfsstyrkingarnámskeiðum, bæði með börnum og fullorðnum, og aðlagað þær að hverjum og einum. Þessar aðferðir auka sjálfsmildi og kærleika í eigin garð, sem hækkar hamin
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Sjálfstal – niðurrif eða uppbygging
Sjálfstal er eitt sterkasta vopnið til þess að byggja upp sjálfið eða til þess að brjóta það niður! Taktu eftir því hvernig þú talar við þig eða um þig… Ertu að segja þér að þú sért glataður/glötuð, getir ekki, ljótur/ljót, vonlaus eða eitthvað í þá veruna? Ef það er vani þinn þá ertu að brjóta niður eigið sjálf… Því það er svo magnað að við heyrum allt sem við segjum við okkur sjálf og öll skynfærin taka við því! Heyrnin nemur það og flytur boðin til undirmeðvitundarinnar se
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Innra með öllum er demantur
Ég var stödd í kassaröðinni í ónefndri búð um daginn. Unga stúlkan brosti, bauð góðan dag á góðri íslensku og bað um kvittun. Afgreiðslumaðurinn roðnaði og áttaði sig á því að hann hafði ákveðið að hún væri útlensk þar sem hún var dökk á hörund. Þessi uppákoma fékk mig til að íhuga hversu oft við ákveðum eitthvað út frá því sem við sjáum í stað þess að sjá hvað raunverulega er. Nokkrum dögum seinna var ég með konu sem er mér kær og hún verður svona kjánaleg og segir við mig:
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Stjórnsemi
Staldrar þú nokkurn tímann við og íhugar hvers konar orku þú sendir frá þér? Ég trúi því að allar manneskjur séu orka og að við sendum orkuna okkar frá okkur yfir til annarra. Þess vegna reyni ég að vanda mig við að velja viðhorf mín, hafa stjórn á skapi mínu og sleppa tökunum á öðru fólki. Sem sagt ekki stjórna öðrum eða skipta mér yfirhöfuð af því hvað aðrir gera eða kjósa í lífinu. Mér finnst einfaldast að leyfa öðrum að vera og gera alveg án minnar íhlutunar, já og án min
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Gerðu óskaspjald
Hefur þú heyrt um óskaspjald? Jebb, þetta Secret-kjaftæði, þar sem þú dregur til þín það sem þig langar í. Ég er með smá fréttir af þessu! Þetta er ekki kjaftæði, ÞETTA VIRKAR. Ég hef gert mér svona spjöld í kringum áramót í nokkur ár og viti menn, það er alveg magnað hvað allt kemur til mín. Ekki allt í einu og alls ekki í þeirri röð sem ég vildi og ekki á mínum hraða, en það kemur. Ætli það séu ekki svona 8 ár síðan ég gerði fyrsta spjaldið mitt og af því að ég hafði ekkert
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read
bottom of page