Lífið – þessi undarlega fallega vegferð
Lífið er ekki alltaf eins og við höfðum ímyndað okkur.
Stundum er það fullt af birtu, gleði og hlátri. Stundum kemur það okkur á óvart með áskorunum sem við hefðum aldrei kosið okkur. Og stundum stöndum við á stað þar sem við þekkjum varla manneskjuna sem við vorum áður.
Við eyðum svo miklum tíma í að skipuleggja lífið. Hugsum um það sem við ætlum að gera, hvert við ætlum að fara og hvernig hlutirnir eiga að verða. En lífið hefur sína eigin leið til að minna okkur á að við höfum ekki stjórn á öllu.
Og kannski eigum við ekki heldur að hafa hana.
Með árunum hef ég lært að lífið snýst ekki eingöngu um að vera sterk, standa sig og halda alltaf áfram.
Stundum felst mesti styrkurinn í því að leyfa sér að vera viðkvæm. Að gráta þegar hjartað er þungt. Að hvílast þegar líkaminn er þreyttur. Að viðurkenna að maður hafi ekki öll svörin.
Að þurfa ekki alltaf að vera sú sem heldur öllu saman.
Ég hef líka lært að gleðin og sorgin geta átt heima í sama hjartanu. Að við getum verið þakklát og leið á sama tíma. Að við getum elskað lífið þótt það sé stundum óendanlega erfitt.
Og að jafnvel á erfiðustu dögunum leynast lítil augnablik fegurðar.
Hlýtt faðmlag. Bros. Sólargeisli inn um gluggann. Kyrrð í náttúrunni. Samvera með þeim sem við elskum.
Þessi litlu augnablik sem við tökum stundum sem sjálfsögðum hlut eru í raun lífið sjálft.
Kannski er það einmitt verkefni okkar að læra að vera meira til staðar í því sem er, í stað þess að bíða stöðugt eftir því sem verður.
Að hætta að fresta gleðinni.
Að elska meira.
Að fyrirgefa oftar.
Að hlusta á hjartað.
Að muna að við þurfum ekki að vera fullkomin til að eiga fallegt og innihaldsríkt líf.
Lífið er ekki keppni sem við þurfum að vinna. Það er ferðalag sem við fáum að upplifa.
Og kannski er ein fallegasta gjöfin sem við getum gefið okkur sjálfum að mæta lífinu eins og það er, með opnu hjarta, mildi og kærleika.
Því að lokum eru það ekki allir hlutirnir sem við afrekuðum sem skipta mestu máli.
Heldur hvernig við elskuðum, hvernig við snertum líf annarra og hvort við leyfðum okkur sjálfum að lifa.
Ekki bara lifa af. Heldur lifa.
Kyrrð – leiðin heim í hjartað þitt.
Ef þig langar að staldra við og finna kyrrðina með mér, hefst Kyrrðarjóga í sal mánudaginn 2. nóvember.



Comments