34 einkenni breytingaskeiðs kvenna
Eins og hefur ekki farið framhjá neinum lesanda er ég miðaldra kona á þessu blessaða blómaskeiði sem heitir breytingaskeið.
Það fer mörgum sögum af þessu skeiði og ég hef heyrt svo dásamlegar setningar eins og: „Þetta er það skeið sem konan fer fyrst að blómstra og breyta til í lífi sínu á þann hátt sem henni þykir best.“
Jú, jú, ég get alveg tengt við þessa setningu. Ég hef alveg blómstrað um einhver 30 kíló og gert allskyns breytingar mér til góða, eins og að sleppa brjóstahaldaranum, kaupa mér mjög kröftuga viftu til að hjálpa mér að kólna í hitakófunum og liggja meira í sófanum til þess að mæta því að ég er alltaf þreytt.
Ég hef farið í sálfræðimeðferð af því að ég fór alveg upp úr þurru að fá kvíðaköst og allskonar geðvitleysu. Ég eyði helmingi meiri peningum í húðolíur og rakakrem, því húðin er þurr eins og sandpappír, svo ég tali nú ekki um plokkara út um allt hús, í bílnum og öllum vösum, því þessi dásamlegu skegghár blómstra sem aldrei fyrr!
Jammm… bestu dagarnir eru náttfatadagar með hárið ógreitt, liggjandi í sófanum með viftuna í botni, en það er ekki eins og maður geti átt endalaust af þannig dögum.
Svo er eitt annað sem er algerlega óþolandi við þetta annars dásamlega skeið kvenna. Skyndilega þolir maður ekki að borða eitt og annað, áfengi verður nó-nó og of miklar hreyfingar á almannafæri valda því að þú ert rennandi blaut frá toppi til táar.
Talað er um að 34 einkenni séu algengust á þessu skeiði, já, ég sagði 34! Sem dæmi má nefna hitakóf, nætursvita, þyngdaraukningu, minnkaða kynlöngun, geðsveiflur og leggangaþurrk. Ofantalið er einungis það algengasta, en svo eru svona skemmtilegheit eins og allskonar verkir og breyting á líkamslykt. Frábært, ekki satt?
Björtu hliðarnar eru þær að á eftir þessu „blómaskeiði“ hef ég heyrt að komi frábær tími. VÁ hvað ég hlakka til!
Ég hef reyndar fundið ýmsar leiðir sem gera mér þetta skeið skárra. Ég neyðist til dæmis til að stunda reglubundna hreyfingu því hún dregur úr einkennum. Það er jákvætt. Ég sneiði hjá matvælum sem koma af stað kófi og drekk í mjög miklu hófi. Að stunda djúpslökun og hugleiðslu hjálpar, já, og blessuð jákvæðnin sem kemur í veg fyrir að maður fari í dimma dali, og hæðnin… jebb, hún reddar mér helling, sér í lagi þegar ég kem heim kófsveitt í gráum buxum með blautan svitablett í klofinu. Nei, ekki vegna þvagleka heldur vegna hitakófs og svita! Ég ætla ekki út í þvagleka hér, það er allt annar pistill.
Stelpur á besta aldri, áfram þið!
Kristín Snorradóttir



Comments