top of page

Fyrirlestrar

Styrkur þeirra sem styðja aðra
Fyrir fagfólk og vinnustaði í umönnunar-, velferðar- og þjónustustörfum
Þau sem styðja aðra gleyma oft að styðja sig sjálf. Í fyrirlestrinum er fjallað um samkenndarþreytu, kulnun og hvað gerist í taugakerfinu þegar álagið verður viðvarandi. Þátttakendur læra að þekkja fyrstu merkin hjá sjálfum sér og fá hagnýtar leiðir til að byggja upp seiglu, bæði fyrir einstaklinginn og vinnustaðinn í heild. Fyrirlesturinn endar á stuttri æfingu sem fólk tekur með sér út í daginn.
Lengd: um 60 mínútur, einnig í boði sem 90 mínútna vinnustofa.

Öryggi er forsenda breytinga
Fyrir vinnustaði, stjórnendur og fagfólk sem vinnur með fólki
Fólk breytist ekki þegar það er hrætt, heldur þegar það finnur til öryggis. Fyrirlesturinn kynnir áfallamiðaða nálgun á mannamáli: hvernig fyrri reynsla hefur áhrif á viðbrögð fólks, og hvernig skapa má öryggi í samskiptum, í þjónustu og á vinnustaðnum sjálfum. Þátttakendur fá skýran ramma og einföld verkfæri sem nýtast strax í daglegu starfi.
Lengd: um 60 mínútur, einnig í boði sem 90 mínútna vinnustofa.

Kona í eigin krafti
Fyrir konur, kvennahópa, félagasamtök og vinnustaði
Um sjálfsmynd, mörk og að taka pláss í eigin lífi. Við skoðum konuna sem ber allt og alla, innri gagnrýnandann og hvernig má svara honum með mildi. Þátttakendur æfa sig í að setja mörk og segja nei á hlýlegan hátt, finna gildin sín og taka eitt skref í átt að því lífi sem þær vilja lifa. Hlýr og persónulegur fyrirlestur með stuttum æfingum og íhugun.
Lengd: um 60 mínútur, einnig í boði sem 90 mínútna vinnustofa með æfingum í pörum.

Jóga nidra: hvíld sem nærir
Fyrir vinnustaði, heilbrigðisstarfsfólk og alla sem vilja kynnast jóga nidra
Hvað gerist þegar líkaminn hvílist eins og í svefni en vitundin er áfram vakandi? Fyrirlesturinn fer yfir nýjustu rannsóknir á jóga nidra: áhrif á streitu, kvíða og svefn, hvað gerist í heilanum og hvernig aðferðin hefur nýst eftir áföll. Farið er heiðarlega yfir hvað rannsóknirnar sýna og hvað þær sýna ekki. Hægt er að enda á stuttri leiddri iðkun svo gestir upplifi hvíldina sjálfir.
Lengd: um 30 mínútur, eða 45 mínútur með leiddri iðkun.

​

Hægt er að panta fyrirlestur á fagvitund@fagvitund.is

bottom of page