top of page

Námskeið

Litlir hópar, aðeins átta pláss. Á staðnum eða í fjarfundi. Nýjar dagsetningar verða auglýstar fljótlega – skráðu þig á biðlista og þú færð fyrst að vita.

Væntanlegt

Nýtt upphaf, frá streitu til kyrrðar – á staðnum

Átta vikna námskeið í litlum hópi, þar sem klínísk dáleiðsla, hugræn atferlismeðferð, markþjálfun og jóga nidra vinna saman. Þú færð verkfæri til að losa um streitu og kvíða og finna innri ró. Þátttakendur gefa námskeiðinu 9,6 af 10 í meðaleinkunn.

69.900 kr.

Væntanlegt

Nýtt upphaf, frá streitu til kyrrðar – í fjarfundi

Sama námskeið og á staðnum, kennt í beinni á Zoom einu sinni í viku í átta vikur. Hentar vel ef þú býrð utan höfuðborgarsvæðisins eða vilt vera heima. Flest stéttarfélög styrkja allt að 90% af námskeiðsgjaldinu.

62.900 kr.

Væntanlegt

Hámarksárangur – hópnámskeið og einkatími

Fyrir íþróttafólk og alla sem vilja ná toppárangri á sínu sviði. Markþjálfun og klínísk dáleiðsla hjálpa þér að finna innri hvata, styrkja sjálfsmyndina og skerpa sýnina. Innifalið er þriggja vikna hópnámskeið og einkatími með þinni eigin dáleiðsluupptöku.

44.900 kr.

SKRÁNING HAFIN

Kyrrðarjóga – í sal

Sex vikna námskeið í jóga nidra, djúpri slökun þar sem líkaminn hvílir og vitundin vinnur. Mánudaga kl. 18:15–19:15 í Yogasmiðjunni, Bíldshöfða 16, frá 2. nóvember. Hentar öllum og engin reynsla er nauðsynleg.

24.900 kr.

SKRÁNING HAFIN

Taugakerfisæfingar og jóga nidra – netnámskeið

Róandi taugakerfisæfingar og djúp slökun í beinni á Zoom. Föstudaga kl. 18:00–19:15, sex skipti frá 6. nóvember. Þú færð upptökur af öllum tímum og aðgang að efninu í þrjá mánuði.

17.900 kr.

Væntanlegt

Vitund – námskeið fyrir fagfólk

Verð auglýst síðar.

Væntanlegt

Seigla og sjálfsumhyggja í krefjandi starfi

Verð auglýst síðar.

bottom of page