
Kyrrðarjóga – í sal
Næsti hópur auglýstur síðar
Available spots
Service Description
Kyrrðarjóga er öruggur staður þar sem þú gefur líkama og sál tækifæri til að upplifa endurheimt og heilun á eigin hraða og forsendum. Tímarnir eru þannig byggðir upp að þú kemur inn í kyrrlátan sal þar sem heilunartónar taka á móti þér. Þú kemur þér fyrir á dýnu og Kristín leiðir þig í jóga nidra-ferðalag sem tekur um 45–50 mínútur. Þú kemur svo mjúklega til baka og hefur rými til að upplifa, deila eða spyrja um upplifun þína eftir tímann. Unnið er eftir aðferð I AM Yoga Nidra, þar sem vitundin vinnur og líkaminn hvílir. Í öllum tímum eru falleg spil með innblæstri lögð á hverja dýnu. Hentar öllum – engin reynsla nauðsynleg. Kennt í sal Yogasmiðjunnar, Bíldshöfða 16, á mánudögum kl. 18:15. Sex vikna námskeið, takmarkaður fjöldi. Flest stéttarfélög veita íþróttastyrk sem hægt er að nýta upp í námskeiðsgjaldið.


Cancellation Policy
Afbóka þarf eða breyta tíma með minnst 24 klukkustunda fyrirvara. Ef eitthvað kemur upp á með styttri fyrirvara, hafðu samband í síma 862 1420 eða á fagvitund@fagvitund.is.
Contact Details
+354 862 1420
fagvitund@fagvitund.is
Mosfellsbær, Ísland