top of page

Kristín Snorradóttir

Þroskaþjálfi, markþjálfi og jógaþerapisti. Eigandi Fagvitundar ehf.

​

Styrkur þeirra sem styðja aðra

Sjálfsmyndin er mér hugleikin og öll mín vinna miðar að því að efla einstaklinginn. Ég trúi því að fólk breytist þegar það finnur til öryggis, og að þau sem bera aðra þurfi líka að fá stuðning sjálf. Þess vegna vinn ég bæði með einstaklingum og með fagfólki og vinnustöðum.

​

Hvernig ég vinn

Ég sameina ólíkar aðferðir eftir því hvað hentar hverjum og einum: markþjálfun, hugræna atferlismeðferð, klíníska dáleiðslu og jóga nidra. Nálgun mín er áfallamiðuð og hlý, byggð á traustum faglegum grunni. Ég legg áherslu á að fólk fari frá mér með verkfæri sem það getur notað sjálft, í daglegu lífi og starfi.

Mér finnst fátt skemmtilegra en að kenna. Ég held fyrirlestra og námskeið fyrir vinnustaði, fagfólk og konur, og hef hannað íhugunar- og æfingaspilin Vitund, Flökkutaugina og Leiðarljós sem styðja fólk í eigin sjálfsvinnu.

​

Reynsla

Ég hef starfað sem teymisstjóri í Bjarmahlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, ráðgjafi hjá Aflinu, yfirþroskaþjálfi hjá Ási styrktarfélagi og ráðgjafi hjá Foreldrahúsi. Í dag sinni ég handleiðslu stjórnenda hjá Reykjavíkurborg.

​

Menntun og réttindi

• B.A. í þroskaþjálfafræði frá Háskóla Íslands

• ACC-vottaður markþjálfi

• Hugræn atferlismeðferð og klínísk meðferðardáleiðsla, Endurmenntun Háskóla Íslands

• Amrit-kennararéttindi í I AM Yoga Nidra og Advance

• Jógaþerapía hjá Kamini Desai

• 200 tíma Hatha-jógakennari

• Réttindi í bandvefslosun

​

Viltu vinna með mér?

Einkatímar eru í fjarviðtölum og klínísk dáleiðsla í Mosfellsbæ. Þú getur bókað tíma beint á vefnum eða haft samband á fagvitund@fagvitund.is.

bottom of page