Gerðu haustið töfrandi
Haustið er uppáhaldsárstíðin mín. Litir náttúrunnar eru aldrei fegurri og ferskleiki andvarans meiri. Ég elska rökkrið sem gefur mér tilefni til þess að kveikja á kertum og skapa hlýlega tilveru innanhúss.
En það eru ekki allir sammála mér. Sumum finnst haustið afskaplega erfitt og leiðinlegt og þola ekki myrkrið sem hellist yfir og tilhugsunina um ískaldan veturinn með öllum sínum veðurtilbrigðum.
Hér eru nokkrar tillögur fyrir þá sem ekki kunna að meta haustið um það hvernig hægt er að taka vel á móti því og gera það bjartara og skemmtilegra.
Horfðu á náttúruna.
Sjáðu alla litina sem hún hefur að geyma. Ef þú virkilega horfir með vitund muntu sjá fleiri liti en áður.
Leyfðu þér notalegheit.
Fáðu þér stöku súkkulaðibolla, sestu með mjúkt teppi og lestu góða bók eða horfðu á þátt. Draslið á heimilinu fer ekkert!
Kveiktu á kertum.
Kerti skapa hlýja stemningu, hita herbergið og gefa mjúka lýsingu. Kertaljós getur líka gefið tilefni til þess að krydda aðeins sambandið ef þú ert í sambandi. Smá haustrómantík getur aldeilis gert haustið betra.
Farðu í löng, heit böð.
Með epsomsalti og olíum, kertaljósi, ljúfri tónlist og, fyrir þá sem það fíla, rauðvínsglasi. Þetta er uppáhaldshaust- og vetrarrútínan mín. Fátt er betra en að skella sér í heitt bað með öllu tilheyrandi eftir kaldan íslenskan haustdag.
Prófaðu eitthvað nýtt.
Farðu á framandi námskeið eða smakkaðu eitthvað sem þú hefur aldrei smakkað. Ég ákvað að fara á ljóðaupplestur og viti menn, það var æðislegt. Ég hefði aldrei trúað því að ljóðaupplestur væri skemmtun!
Með öðrum orðum: gerðu haustið notalegt, daðraðu við það og njóttu þess að vera til.
Kristín Snorradóttir



Comments