Hamingja er hugarástand
Smá hugleiðing um hamingjuna.
Oft heyri ég fólk tala um að það verði hamingjusamt þegar það eignast þetta eða klárar eitthvað, eða þegar makinn er eins og það vill, eða börnin útskrifast, eða…
Einu sinni stóð ég í þessari meiningu sjálf! Ég gerði þannig óraunhæfar kröfur til hluta, atburða og fólks og fann óhamingjuna en ekki hamingjuna.
Svo kviknaði ljós í hjartanu og ég fattaði að hamingjan kom innan frá! Hamingjan bjó í hjarta mér. Það eina sem ég þurfti að gera var að leyfa mér að vera hamingjusöm, óháð því hvaða hluti ég átti, óháð þeim verkefnum sem ég var að takast á við og óháð öðru fólki.
Æfingar til að auka við hamingjuna:
Segðu upphátt: „Ég leyfi mér að vera hamingjusöm/hamingjusamur.“
Skrifaðu á minnismiða: „Ég má vera hamingjusöm/hamingjusamur.“ (Sterkast með rauðum penna.)
Þvílíkt frelsi sem það er að velja hamingjuna.
Kristín Snorradóttir



Comments