
Kyrrðarjóga – í sal
Hefst 2. nóvember · sex mánudaga kl. 18:15 í Yogasmiðjunni
Available spots
Service Description
Ertu þreytt/ur, sefur illa eða finnur að streitan situr í líkamanum? Kyrrðarjóga gefur þér eina stund í viku þar sem þú þarft ekkert að gera nema liggja, hlusta og hvílast. Flest stéttarfélög veita íþróttastyrk sem hægt er að nýta upp í námskeiðsgjaldið. „Ég hlakka alltaf til að mæta til Kristínar í Kyrrðarjóga. Ég næ mikilli slökun og röddin hennar er mjög seiðandi. Ég fer alltaf eins og ný manneskja inn í nýja viku. Takk fyrir mig, elsku besta.“ – Úrsúla Auðunsdóttir, sjúkraliði „Ég hef verið í jóga nidra hjá Kristínu og það hefur verið töfrum líkast. Hún hefur dásamlega nærveru og skapar hlýlegt og öruggt rými þar sem maður fær að staldra við, sleppa tökunum og finna djúpa ró. Ég mæli heilshugar með námskeiðum hjá Kristínu, bæði fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í hugleiðslu og þau sem vilja dýpka eigin iðkun.“ – Rósa Björg Ómarsdóttir Jóga nidra er leidd djúpslökun þar sem líkaminn hvílir en vitundin er vakandi. Hún róar taugakerfið, hjálpar þér að losa um spennu og gefur rými til að hlaða batteríin. Svona eru tímarnir: Þú kemur inn í kyrrlátan sal þar sem heilunartónar taka á móti þér og kemur þér vel fyrir á dýnu. Kristín leiðir þig í 45–50 mínútna jóga nidra-ferðalag eftir aðferð I AM Yoga Nidra. Á eftir er rými til að deila upplifun þinni eða spyrja. Á hverri dýnu bíður fallegt spil með innblæstri. Hentar öllum, og engin reynsla er nauðsynleg. Þú liggur allan tímann. Hagnýtt: – Sex mánudagar kl. 18:15, hefst 2. nóvember – Yogasmiðjan, Bíldshöfða 16 – Hámark 12 þátttakendur – Verð: 24.900 kr. fyrir sex skipti (um 4.150 kr. á tíma) Um Kristínu: Kristín Snorradóttir er jógakennari og jógaþerapisti með sérhæfingu í jóga nidra. Hún er einnig þroskaþjálfi, ACC-vottaður markþjálfi og klínískur dáleiðari.


Cancellation Policy
Afbóka þarf eða breyta tíma með minnst 24 klukkustunda fyrirvara. Ef eitthvað kemur upp á með styttri fyrirvara, hafðu samband í síma 862 1420 eða á fagvitund@fagvitund.is.
Contact Details
+354 862 1420
fagvitund@fagvitund.is
Mosfellsbær, Ísland