Er sýndarveruleikinn að taka líf þitt yfir?
Geturðu hætt í miðjum tölvuleik til að sinna þínum nánustu? Lokað Facebook, Instagram og Snapchat hvenær sem er? Ef ekki, getur verið að þú hafir þróað með þér tölvufíkn, eða að þú notir sýndarveruleikann til að flýja raunheima?
Ég velti því fyrir mér hvar raunveruleikinn og sýndarveruleikinn rekast á og hvar mörkin liggja þar á milli. Erum við að tapa raunveruleikaskyninu með því að vera of mikið í sýndarveruleika?
Koma börnin á undan Facebook eða þurfa þau að bíða? Fær makinn þinn alvöru nánd eða fara samskiptin fram í gegnum netið? Manstu yfirhöfuð hvenær þú áttir raunveruleg samskipti? Hvenær þú kíktir í kaffi til vinar, áttir rómantískt kvöld með makanum án síma og tölvu, eða hvenær fjölskyldan spilaði saman eina kvöldstund eða fór í göngutúr? Hvenær tókstu utan um makann þinn? Hvenær knúsaðir þú börnin?
Sjálf hef ég staðið mig að því að eyða endalaust mörgum klukkutímum í ekkert á netinu, bara hangið á Facebook og öðrum miðlum. Jú, jú, alveg verið að spjalla í gegnum skilaboðagluggann og talið mig vera að eiga eðlileg samskipti. Oft hef ég hugsað með mér að ég sé fangi sýndarveruleikans, þar sem hann gefur mér þær upplýsingar sem ég þarf og tekur af mér hvatann til að lifa í raunveruleikanum.
Ég hef gerst sek um að vera fjarlæg og annars hugar í tölvunni og þannig sent mínum nánustu þau boð að tölvan komi fyrst og svo þau. Þokkalega stór höfnun sem maður sendir sínum nánustu þegar sýndarveruleikinn er í fyrsta sæti og fólkið í öðru.
Staðreyndin er sú að enginn getur breytt minni hegðun nema ég sjálf og ég þarf að forgangsraða: fólkið mitt númer eitt og tölvan númer tvö.
Ég, fyrir mitt leyti, hef sett mér það markmið að sinna fólkinu mínu betur og eiga fleiri alvöru gæðastundir með því, taka frekar upp tólið og hringja en að spjalla á Facebook. Hætta að hanga í símanum í tíma og ótíma og alls ekki þegar ég hitti fólk. Ég vil eiga raunveruleg samskipti við mitt fólk og sýna því kærleikann í verki, bara vera alvöru. Ég vil að sama skapi finna að ég skipti meira máli en einhver sýndarveruleiki á netinu.
Ég hvet ykkur til að skoða hver staða ykkar er. Ég veit að ég þarf að taka mig á og það byrjar núna!
Sjáumst hress og í raunheimum.
Kristín Snorradóttir



Comments