Hvað hefur þú að segja á netinu?
Stundum þoli ég ekki Facebook. Mér finnst hún alger tímaþjófur og draga úr eðlilegum samskiptum milli fólks. Ég sakna þess að detta inn í kaffi hjá öðrum og að aðrir detti inn í kaffi hjá mér, að eiga samskipti augliti til auglitis en ekki á þessari andlitsbók á veraldarvefnum.
Ég er alveg sek um að hanga alltof mikið á þessari vefrænu andlitsbók og eiga samskipti við fólk í gegnum hana. Vitið þið, mér finnst það ekkert fullnægjandi samskiptaform og mig langar að það breytist. Þannig að það er mitt að breyta því, en það er ekki mitt að dæma andlitsbókina og notendur hennar, einungis að taka mínar ákvarðanir varðandi mína notkun.
Vó! Hér er ég bara búin að játa á mig ofnotkun á andlitsbókinni og segja ykkur að ég sakna gamaldags samskipta þar sem fólk hittist og talaði saman. Það var eiginlega ekki það sem þessi pistill átti að fjalla um, en „anyways“, ég leyfi honum bara að byrja svona.
Ég hafði hugsað mér að nefna kosti andlitsbókarinnar, því jú, allt hefur sína plúsa og mínusa. Kannski gott að byrja á mínusnum og ljúka á plúsnum, þannig sendi ég lesandann með plús frá pistlinum!
Jæja, að efninu. Mér finnst gaman að skoða minningabankann á andlitsbókinni og rifja upp það sem ég hef sett fram þar, algerlega misgáfulegt og stundum ekki svo skemmtilegt en oftar eitthvað jákvætt og hressandi. Í morgun skaust upp minning um pistil sem ég skrifaði fyrir ári um mikilvægi þess að lifa núna. Jebb, fyrir ári tók ég ákvörðun um að gerast aftur pistlahöfundur og gera það sem ég elska, að skrifa.
Að skrifa um allt og ekkert. Mín reynsla er sú að skrif eru svo ótrúlega magnað fyrirbæri. Að skrifa um eigin reynslu og deila henni með öðrum er þvílíkt heilandi. Við eigum öll einhverja reynslu sem er annað hvort sár eða hamingjurík og þessi reynsla okkar getur verið öðrum svo stór gjöf.
Ég hef tekist á við allskonar í lífinu rétt eins og allir aðrir og mér hefur fundist svo ótrúlega dýrmætt að lesa um reynslu annarra, því það hefur svo oft verið mér ótrúleg gjöf.
Í alvöru, prófið að skrifa ykkur frá hlutunum, eða bara skrifa sögu eða ljóð eða hvað sem ykkur dettur í hug. Innra með sérhverri manneskju er saga sem getur nýst annarri manneskju til góðs, pælið í því!
Pælið líka í því hvað andlitsbókin væri falleg ef allir skrifuðu fallega statúsa.
Njótið og munið: lífið er núna.
Kristín Snorradóttir



Comments