Ofbeldi lýsir sér svona
Ertu í ofbeldissambandi?
Oft er því þannig farið að konur átta sig ekki á því að þær eru í sambandi þar sem makinn beitir þær ofbeldi, bæði líkamlegu og andlegu. Sterkustu konur, með mjög góða sjálfsvirðingu, lenda í þessum samböndum rétt eins og þær sem eru brotnar.
Það er mikilvægt að þekkja hvernig ofbeldismenn hegða sér. Þeir virðast hafa þróað með sér ákveðna uppskrift og sumir fara svona í gegnum mörg sambönd og brjóta niður konu eftir konu. Á heimasíðu Kvennaathvarfsins er að finna mjög lýsandi skýringarmynd af þessu.
Vitað er að konur í ofbeldissamböndum segja oft ekki frá vegna þess að þær finna fyrir skömm, og jafnvel vegna þess að þær átta sig ekki á að þetta sé ofbeldi. Einkenni eins og að fjarlægjast vini og fjölskyldu er eitthvað sem vinir og fjölskylda geta veitt eftirtekt og brugðist við, til dæmis með því að vera í meiri samskiptum.
Á heimasíðu Kvennaathvarfsins, kvennaathvarf.is, er að finna skilgreiningu á ofbeldi og upplýsingar um aðstoð sem er í boði.
Ég hvet alla til að vera á varðbergi og deila þessum pistli svo konur geti verið upplýstar um ofbeldismenn.
Kristín Snorradóttir



Comments