top of page

Kona, ertu að sinna þér vel?

2 days ago
2 min read

Nú þegar farið er að skyggja, haustlægðirnar í svaka stuði og dimmur, langur íslenskur vetur framundan er mikilvægt að hugsa extra vel um sig.

Hvernig getur þú hugsað betur um þig?

Jú, á margan hátt. Fyrsta skrefið er að horfast í augu við að þú ert eina manneskjan sem þú þarft að lifa með allt þitt líf.

Ó já, það eitt og sér ætti að duga til þess að setja þig í fyrsta sæti og passa upp á að þér líði vel og að þú sért glöð og hamingjusöm, gerir skemmtilega hluti og notir þína hæfileika til fullnustu.

Hættir að gera þær kröfur að þú sért óaðfinnanleg og að allt þurfi að vera tipp topp.

Einfalt… ekki satt?

Staðreyndin er sú að það er ekki svona einfalt. Sem kona gegnir þú mörgum hlutverkum, t.d. sem dóttir, móðir, amma, fagaðili, eiginkona, kærasta og fullt fullt meira. Prófaðu að skoða öll þín hlutverk og reyndu að sjá hvar þú sjálf fellur inn í myndina og hvernig þú ert að sinna þér.

Ertu aftarlega í röðinni eða ertu fremst?

Oft setja konur sig aftarlega: fyrst koma börnin, svo maðurinn og húsverkin og…

Hvað ætli gerist ef þessu er snúið við? Fyrst kemur þú, svo börnin og makinn og…

Það græða allir og ekki síst þú, því með þessu setur þú bæði líkamlega og andlega heilsu þína í fyrsta sæti. Að taka sér tíma til að næra sig andlega og líkamlega á þann hátt sem þér finnst gott, t.d. með göngu í náttúrunni, að liggja með góða bók í sófanum, kaupa þér rós eða bara hvað sem gleður þig og styrkir þitt sjálf.

Börnin græða hamingjusama móður sem skilar þeim klárlega dásamlegri nærveru og kennir þeim að hugsa vel um sig, eiginmaðurinn eignast glaðari konu sem verður líka meira sexý af því að hún ljómar, vinnustaðurinn fær betri fagaðila og svona smitast það að hugsa vel um sig út í umhverfið.

Nokkrir punktar sem gætu nýst þér:

Ef þú ert ein af þeim sem vilja hafa allt fullkomið (fullkomnunarárátta):

Þá er tær snilld að æfa sig í að gera hlutina ekki fullkomna, t.d. baka ljóta köku og bjóða upp á hana.

Ef þú ert ein af þeim sem setja þarfir annarra fram fyrir þínar:

Þá er gott að æfa sig smá á hverjum degi í dagsdaglega lífinu. Sestu niður í korter og hugleiddu eða lestu bók áður en þú eldar fyrir fjölskylduna, eða enn betra, fáðu fjölskyldumeðlimi til að taka þátt með þér.

Ertu alltaf að kaupa eitthvað á börnin og karlinn en aðeins örsjaldan, og þá það ódýrasta, fyrir þig?

Leyfðu þér, eins og fjárhagur þinn leyfir, að kaupa þér eitthvað fallegt. Það er t.d. ekki svo ýkja dýrt að kaupa sér blóm eða setjast á kaffihús og njóta þess að fá sér góðan kaffibolla.

Hvernig væri að taka ákvörðun um að þessi vetur verði tileinkaður staðhæfingunni:

Ég er mikilvægasta manneskjan í mínu lífi og ég á allt gott skilið.

PS… Það virkar að fara með þessa setningu upphátt þrisvar á dag. Þá muntu finna mun og fara að hugsa betur um þig og það verður svo miklu skemmtilegra að vera þú og að búa með sjálfri þér.

 
 
 

Comments


bottom of page