Fíklar eru líka fólk
Málefni fíkla og aðstandenda þeirra standa mér nærri hjarta. Ég hef horft á eftir alltof mörgum deyja af völdum fíknisjúkdómsins og séð hversu ljót sú veröld, undirheimarnir, er.
Þegar ég starfaði sem ráðgjafi fyrir unga fíkla og foreldra þeirra heyrði ég sögur sem voru svo átakanlegar og ljótar að flestum dettur ekki í hug að þær gerist í alvöru, þær hljóta að vera bara í bíómyndum. Heimur fíkils er bæði harður og ljótur og heimur aðstandenda fíkla er fullur af sorg og ótta. Biðin eftir hinu skelfilega símtali sem tilkynnir að ástvinur þinn, fíkillinn, hafi fundist látinn.
Samfélagslegir fordómar í garð fíkla og aðgerðaleysi stjórnvalda. Þetta eru óþægileg mál og fíklar öllum til ama, eða hvað?
Sú staðreynd að fíkn er viðurkenndur sjúkdómur í greiningarkerfum og flokkast sem geðsjúkdómur gleymist allt of oft, og sú staðreynd að fíklar eru fólk sem á foreldra, systkini, börn og svo framvegis. Já, fíklar eru oft foreldrar eða synir og dætur. Þau eiga ástvini sem elska þau rétt eins og aðrir elska ástvini sína.
Eins og ég sagði fyrr í þessum pistli hef ég séð alltof marga deyja sökum fíknar. Allt ungt fólk sem dó löngu fyrir aldur fram. Sum þeirra eiga stóran stað í hjarta mínu og ég minnist þeirra reglulega, ekki sem fíkla heldur sem manneskjanna sem voru fastar í klóm fíknar. Þessir einstaklingar eru ósköp venjulegir og flestir mjög blíðir en festast í fíknisjúkdómnum sem tekur á sig skelfilegar myndir eins og ofbeldi, þjófnað og annað slæmt.
Síðasta áratug eða svo hef ég séð hverju meðferðarheimilinu fyrir unglinga lokað á fætur öðru og séð hvernig heilbrigðiskerfið á erfiðara með að sinna þessum hópi. Já, og séð þau deyja í kippum. Sú staðreynd blasir við að við þurfum að bregðast við sem samfélag, sérstaklega þar sem sprautufíklum fjölgar hratt.
Ég hvet okkur sem samfélag til að standa upp og krefjast þess að stjórnvöld geri eitthvað í þessum málaflokki. Ég er næstum viss um að flest okkar þekkja einhvern sem berst við alkóhólisma eða fíknisjúkdóminn. Ég sjálf elska nokkra sem þjást og, sem betur fer, nokkra sem eru í bata líka, sem er ómetanlegt kraftaverk.
Reynsla mín sem fagaðili er að þetta eru bestu krakkar og að foreldrar eru almennt að gera sitt allra besta.
Ást og kærleikur út í alheiminn, og megi allir fordómar í garð fíknar leggjast af.
Kristín Snorradóttir



Comments