top of page

Fallegasta umsögnin er frá ófæddum dreng

3 days ago
1 min read

Fékk leyfi til að segja frá þessu:

Hjá mér hefur verið ófrísk kona í dáleiðslumeðferð og er hún nú í jóga nidra æfingabúðum.

Konan er komin 31 viku á leið og fór í þrívíddarsónar. Barnið sneri höfðinu að fylgjunni, eins og það hefur gert í hvert sinn sem hún hefur farið í sónar.

Ljósmóðirin stakk þá upp á að foreldrarnir spiluðu tónlist, því þá væri algengt að börn í móðurkviði sneru sér við… nei, ekkert gerðist!

Móðirin ákvað þá að kveikja á dáleiðsluupptöku sem hún notar heima á milli tíma og barnið tók strax við sér, sneri andlitinu í átt að alheiminum og móðirin gat ekki betur séð en að það brosti 🙂

Pabbinn kveikti svo á Star Wars-laginu og barnið sneri höfðinu strax aftur að fylgjunni!

Ég fékk að sjá myndirnar af þessu litla kraftaverki og fékk gæsahúð af gleði yfir viðbrögðum barnsins við dáleiðslu og jóga nidra!

Ég get svo svarið það, ég sá brosið líka!

Það ber líka að geta þess að barnið elskar að mæta í dáleiðslu og jóga nidra, það finnur móðirin á hreyfingum þess í tímunum.

Þetta barn kemur pollrólegt í heiminn.

 
 
 

Comments


bottom of page