top of page

Umsagnir um Nýtt upphaf, frá streitu til kyrrðar

2 days ago
6 min read

Frá árinu 2019 hafa fjölmargir tekið þátt í námskeiðinu Nýtt upphaf, frá streitu til kyrrðar. Hér eru umsagnir þátttakenda, en meðaleinkunn námskeiðsins í 30 umsögnum er 9,6 af 10.

Tanja Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur

„Þetta námskeið hefur gefið mér rosalega mikið. Ég er komin með verkfæri núna sem ég get nýtt mér heima til þess að slaka á þegar ég finn fyrir kvíðanum. Kristín er mikill fagmaður og maður hlakkar alltaf til þess að mæta í tímana. Ég kem miklu sterkari en á sama tíma rólegri frá námskeiðinu.“

Janúar 2020

Ragnheiður Ketilsdóttir: „Ég var efins um að þetta myndi virka á mig og var viss um að enginn gæti dáleitt mig, en það tókst bara í fyrsta tíma! ÓTRÚLEGT. Ég er búin að læra svo margt og það sem ég hef lært hefur hjálpað mér í daglegu lífi.“ Einkunn: 10

Afreksíþróttakona: „Ég get róað mig niður við hvaða tilefni sem er, er einbeittari og get talað við ókunnuga um sjálfa mig.“ Einkunn: 10

Kona um þrítugt: „Mjög gott andrúmsloft í meðferðarherberginu. Mjög slakandi og maður lærir mikið á sitt innra sjálf. Ber mikið traust til Kristínar og annarra í hópnum. Klárlega hápunktur vikunnar. Ég hef fengið kunnáttu til að slaka á og ná mér niður ef eitthvað bjátar á.“ Einkunn: 9

Kona um fimmtugt: „Mjög fræðandi og skemmtilegt námskeið. Áhugaverð nálgun og ég hef lært að iðka slökun.“ Einkunn: 9

Október 2019

Ólöf Anna, hárgreiðslukona: „Þetta námskeið gerði mér mjög gott. Ég er mun jákvæðari og líður betur andlega. Náði tökum á kvíðanum, t.d. með djúpslökun og dáleiðslu. Er komin með betri sýn á lífið og finnst allt ganga miklu betur. Er komin með betra sjálfstraust og orðin betri við sjálfa mig.“ Einkunn: 10

Leikskólakennari: „Þetta er búið að vera dásamlegt ferðalag og ég er rétt að byrja að kynnast sjálfri mér á annan hátt. Ég hef náð góðum tökum á hugleiðslu og fengið að kynnast dáleiðsluaðferð sem ég á eftir að nýta mér. Takk fyrir mig, Kristín.“ Einkunn: 10

Grunnskólakennari: „Hugurinn hefur róast, ég get orðið hinkrað við en ekki látið allt gossa. Þakklætisbænin og ásetningurinn virka! Ég þori að taka ákvarðanir varðandi framtíðina.“ Einkunn: 9

Grunnskólakennari: „Gagnlegt og skemmtilegt námskeið. Þægilegt andrúmsloft og ég hlakka alltaf til að mæta. Mun halda áfram að iðka.“ Einkunn: 10

September 2019

Sædís Sif: „Ég rakst á námskeiðið fyrir tilviljun og ákvað að taka þátt af heilum hug vegna nokkurs konar lífsörmögnunar sem erfitt var að leggja fingur á. Námskeiðið náði til mín strax í upphafi og aðstoðaði mig við að setja fingurinn á það sem var í gangi innra með mér og gaf mér styrk til að takast á við það. Það má með sanni segja að námskeið Kristínar hafi náð mér frá streitu til kyrrðar! Ég lærði leiðir til að verja mig, staldra við fyrr, rýna í aðstæður og bregðast betur við. Fimm stjörnur á Stínu.“ Einkunn: 10

Sædís Sif, eftir aðeins þrjá tíma: „Aðferðirnar sem nýttar eru á námskeiðinu hafa, meðvitað og ómeðvitað, aðstoðað mig við að ná betri tökum á neikvæðum fylgikvillum ADHD í mínu lífi. Á nokkrum dögum hef ég náð betri tökum og yfirsýn á aðstæðum sem áður ollu mér höfuðverk og svitaköstum. Hugurinn er oftar í meiri ró sem gefur mér tækifæri til að njóta meira og skynja umhverfi mitt og aðstæður.“

Jóna Kristín, 48 ára: „Þetta námskeið hefur hjálpað mér mjög mikið að hafa stjórn á kvíðanum mínum. Ég er að læra að hugsa vel um mig og leyfa mér að gera það sem mér finnst skemmtilegt. Kristín, þú ert fagmaður fram í fingurgóma og það er svo notalegt að vera í kringum þig. Svo skemmir ekki húmorinn þinn. Ég hef lært að hugsa um mig og aðferðir til að fækka kvíðaköstum.“ Einkunn: 10

Vilhelmína, 39 ára: „Yndislegt námskeið að öllu leyti. Kristín er æðislegur leiðbeinandi, kemur efninu vel frá sér og er hafsjór af upplýsingum og ráðum um ýmsar aðstæður og hvernig hægt er að takast á við þær. Mæli 100% með námskeiðinu hjá henni.“ Einkunn: 10

Sigrún Margrét, 76 ára: „Þetta námskeið hefur gert mér mjög gott. Núna hlakka ég til að leggjast fyrir, hlusta á hljóðskrána hennar Kristínar og slaka á. Ég lærði slökun, þakklæti og að vera jákvæð, sem og að standa með sjálfri mér.“ Einkunn: 9

Anna Karen Hauksdóttir: „Námskeiðið fór fram úr mínum björtustu væntingum. Ekki aðeins náði maður að kynnast jóga nidra heldur var kafað ofan í tilfinningar og hver og einn gat ráðið för. Sannkallaður lífsins skóli, þetta námskeið. Hópurinn passlega stór, þannig að hver og ein naut sín vel undir frábærri handleiðslu Kristínar.“ Einkunn: 9,5

Esther Ósk Ármannsdóttir: „Mjög gagnlegt og gott námskeið. Persónulegt, litlir hópar. Kristín er hlý og fagleg og hjálpar mikið með sinni reynslu og metnaði. Ástríðan í starfi skín í gegn.“ Einkunn: 9

Ágúst 2019

Jóhanna, 59 ára: „Mjög gagnlegt til að ná tökum á streitu og kvíða í daglegu lífi. Svo mörg hjálpartæki sem nýtast mér til að greina betur eigin líðan. Námskeiðið hefur fengið mig til að ná slökun sem ég hef sjaldan gefið mér tíma fyrir áður. Upplifði mig losna úr búri sem ég hef verið lokuð inni í til fjölda ára!“ Einkunn: 10

Harpa, 38 ára: „Mér finnst dásamlegt að ég hafi tekið ákvörðun um að fara í þetta ferðalag með Kristínu og hinum konunum á námskeiðinu. Þessi vegferð í átt að betri líðan og að tengjast aftur mínu sanna sjálfi. Ég lærði að slaka á og ná kyrrð í hjarta og sál.“ Einkunn: 9

Ásta, 63 ára: „Mér finnst Kristín frábær og ég er mjög sátt við námskeiðið.“ Einkunn: 10

Júní 2019

Kona, 30 ára: „Ég hafði miklar væntingar til þessa námskeiðs og það kom ánægjulega á óvart að það fór fram úr þeim öllum. Ég er mun léttari á mér, finnst ég hafa kynnst sjálfri mér betur og unnið úr mörgum gömlum og erfiðum tilfinningum sem hafa íþyngt mér í svolítinn tíma. Ég hef fengið verkfæri til að nota sjálf og nýtt mér margar af aðferðunum í mínu daglega lífi með góðum árangri.“ Einkunn: 10

Kristbjörg, 53 ára: „Frábært og uppbyggjandi námskeið sem gefur manni sjálfstraust og kennir manni að slaka á huganum og líkamanum. Þetta mun nýtast mér það sem eftir er.“ Einkunn: 10

Kona, 61 árs: „Frábært, styrkjandi og sjálfseflandi námskeið í alla staði. Það er farið svo vel inn á við og unnið með líðan, hver og ein getur verið í sínu flæði. Kristín er frábær leiðbeinandi.“ Einkunn: 10

Villa, 39 ára, gistihúsaeigandi: „Mér fannst námskeiðið skemmtilegt, misauðveld verkefni sem gáfu samt svo mikið. Ég hlakkaði til að mæta í hvern einasta tíma.“ Einkunn: 10

Jóna Kristín, 48 ára, þroskaþjálfi: „Kristín er fagleg og veit hvað hún er að gera. Mér fannst mjög gott að slaka á hjá henni, eini staðurinn sem ég virkilega náði að slaka á.“ Einkunn: 9

Maí 2019

Rósa S., 42 ára: „VÁ! Ég hef farið á hin og þessi námskeið í gegnum tíðina í tengslum við sjálfsvinnu en þetta toppar allt! Passlegur fjöldi á námskeiðinu sem myndar mikið traust. Kristín er fagmaður fram í fingurgóma og mér finnst fjölbreytileikinn, það er að segja spjall, jóga nidra, dáleiðsla og hugræn atferlismeðferð ásamt heimavinnu, vera fullkomin blanda.“ Einkunn: 10

Edda H., 45 ára: „Námskeiðið kom mér á óvart. Kristínu hefur tekist að pakka allri sinni kunnáttu saman í meðfærilegan vöndul sem ég held að geti hentað öllum. Ekkert of flókið, ekkert of krefjandi, en það er að skila mér persónulega miklu meira en ég hefði þorað að vona.“ Einkunn: 10

Kristín B., 64 ára: „Ég kom hingað frekar langt niðri vegna álags og streitu og væntingar mínar voru ekki miklar. En þetta námskeið hefur verið frábært í alla staði, hvað varðar leiðbeinanda og alla umgjörð. Í dag get ég slakað á og mér líður vel í sjálfri mér.“ Einkunn: 10+

Ásdís R., 48 ára: „Frábært námskeið fyrir mig. Ég hef öðlast meiri styrk og kann betur að stjórna huganum. Ég klappa mér oftar á öxlina og tek oftar utan um mig.“ Einkunn: 10

„Virkilega vandað námskeið og áhugasamur kennari. Mikilvægt mótvægi við hraða og streitu nútímans. Ég fann aftur orkuna mína sem hafði dalað verulega!“ Einkunn: 9

„Námskeiðið var yndislegt og ég hlakkaði alltaf til að mæta. Kristín var alltaf innileg og heiðarleg og hún gefur mikið af sér. Mér fannst ég endurnærð eftir hvern tíma. Ég mæli hiklaust með námskeiðinu.“ Einkunn: 9

„Námskeiðið kenndi mér aðferðir til að auka orkuna mína, slaka á á streitutímum, tengjast sjálfri mér og átta mig á því hvað ég vil gera við líf mitt. Útgeislun og jákvæðni jukust til muna. Allir litir verða sterkari.“ Einkunn: 9,5

 
 
 

Comments


bottom of page