top of page

Efldu sjálfsmynd barnsins þíns

2 days ago
2 min read

Ráð til foreldra sem nýtast til að efla sjálfsmynd barna:

Foreldrar þekkja börnin sín best og leggja sig alla fram við að gefa þeim gott veganesti út í lífið. Mikilvægt er að foreldrar hafi gott sjálfstraust og hlusti á innsæi sitt við uppeldi barna sinna. Foreldrar eru mikilvægustu fyrirmyndir barna sinna því börn læra af því sem fyrir þeim er haft og því geta foreldrar byggt upp sterka sjálfsmynd hjá börnum sínum með eigin athöfnum.

Börnin heyra og sjá hvernig foreldrar bregðast við daglegum athöfnum í lífinu:

Gættu orða þinna, börn eru næm á orð foreldra sinna. Mikilvægt er að hrósa börnum fyrir vel unnið verk en jafn mikilvægt er að hrósa þeim fyrir átakið sem þau lögðu á sig. Ef eitthvað mistekst hjá barninu er t.d. gott að hrósa því fyrir að reyna, það byggir upp trú hjá barninu á að æfingin skapi meistarann.

Börn læra það sem fyrir þeim er haft:

Ef foreldri er neikvætt og niðurbrjótandi í eigin garð er það lærdómurinn sem barnið nemur. Foreldrar eru speglar barna sinna. Vertu jákvæð fyrirmynd. Vertu með skýr en sanngjörn mörk, börn upplifa öryggi í mörkunum. Börn vita til hvers er ætlast af þeim þegar mörk eru skýr en óljós mörk valda þeim óöryggi og jafnvel kvíða. Börn sem búa við skýr mörk eru líkleg til þess að tileinka sér góðan sjálfsaga og verða sterkir einstaklingar.

Gefðu barninu þínu tíma:

Talaðu við það og hlustaðu á það. Börn vilja fá að hafa skoðun og vilja að hlustað sé á þau. Það að hlusta á barnið þitt þýðir ekki að þú segir endilega já en það eflir barnið í að nefna langanir sínar og læra að taka við svarinu, hvort sem svarið er nei eða já. Útskýrðu fyrir barninu þínu af hverju svarið er nei eða já. Börn læra líka að bera virðingu fyrir öðrum þegar borin er virðing fyrir þeim. Að hlusta á aðra manneskju er að sýna virðingu.

Sýndu barninu tilfinningar þínar og samþykktu tilfinningar þess:

Tilfinningalegt uppeldi er mjög mikilvægt. Það styrkir sjálfsmyndina að barn þekki tilfinningar sínar og fái viðurkenningu fyrir því að það sé eðlilegt að upplifa bæði jákvæðar og neikvæðar tilfinningar. Verðu tíma með barninu þínu. Börnum finnst gott að vera með foreldrum sínum og það á sér stað mikilvæg tengslamyndun í samverustundunum sem börn og foreldrar búa að alla tíð. Hafðu barnið með í athöfnum heimilisins, leyfðu því t.d. að taka þátt í að ákveða hvað er í matinn.

Gerið matartímann að samverustund þar sem allir fá innsýn í dag hvers annars.

 
 
 

Comments


bottom of page