Innra með öllum er demantur
Ég var stödd í kassaröðinni í ónefndri búð um daginn.
Unga stúlkan brosti, bauð góðan dag á góðri íslensku og bað um kvittun.
Afgreiðslumaðurinn roðnaði og áttaði sig á því að hann hafði ákveðið að hún væri útlensk þar sem hún var dökk á hörund.
Þessi uppákoma fékk mig til að íhuga hversu oft við ákveðum eitthvað út frá því sem við sjáum í stað þess að sjá hvað raunverulega er.
Nokkrum dögum seinna var ég með konu sem er mér kær og hún verður svona kjánaleg og segir við mig:
„Nei, þú hefur pottþétt ekki áhuga en ég ætla samt að spyrja þó að ég viti að svarið sé nei.“
Ég leit á hana og sagði: „Bíðdu, ertu ekki að ákveða eitthvað fyrir mig núna?“
Hún áttaði sig á þessu og spurði mig hvort ég hefði áhuga á að koma með henni á Hnotubrjótinn, sinfóníu og ballett.
Ég gerði hana orðlausa þegar ég upplýsti hana um að ég elskaði Tchaikovsky og að það væri örugglega gaman að upplifa ballett.
Þetta var stórkostleg sýning.
Ég hef oft lent í því að einhver hafi ákveðið að ég væri svona eða hinsegin, að ég hefði áhuga á þessu og hinu og að líf mitt væri svona eða hinsegin. Eflaust höfum við flest upplifað það einhvern tímann og ég hef sjálf staðið mig að því að dæma.
Oft hef ég heyrt fólk dæma utangarðsfólk hart vegna lífsstíls þess og útlits en þetta er fólk sem villtist af leið, oftast vegna einhverra sjúkdóma. Það er ekki endilega slæmt fólk og oft á það fjölskyldur sem elska það, það gleymist líka. Þetta eru feður, mæður, dætur, synir og svo framvegis.
Ég hef í mörg ár vandað mig við að dæma ekki fólk og hef orðið betri og betri í því með árunum, ekki síst af því að ég er svo heppin að vinna með allskonar fólki. Þetta fólk hefur einmitt kennt mér að sleppa dómarahlutverkinu.
Sem ráðgjafi hef ég það að leiðarljósi að hver manneskja kemur inn til mín sem óskrifað blað, enginn dómur vegna útlits eða einhvers annars.
Ég hef líka lært það í starfi mínu að allir hafa óslípaðan demant innra með sér og það er fátt meira gefandi en að sjá þennan demant skína skært hjá einstaklingum sem eru að vinna sig frá erfiðleikum. Þessi demantur er sjálfið þeirra sem fer að skína skært. Þennan demant er líka að finna hjá utangarðsfólki, það hef ég fengið að sjá.
Leitumst við að gefa fólki færi á að sýna okkur sig áður en við dæmum, við gætum séð eitthvað svo óendanlega fallegt í viðkomandi.



Comments