top of page

Mín leið til að auka lífsgæði mín sem vefjagigtarsjúklingur

2 days ago
2 min read

Ég er greind með illvíga vefjagigt og hef unnið hörðum höndum að því að læra að lifa með henni og sætta mig við að ég mun lifa með þennan sjúkdóm alla mína ævi.

Það hafa komið tímabil þar sem ég stend ekki undir mér, er verkjuð í hverri taug og frumu líkamans, með algert svartnætti í hausnum og hefur fundist lífið lítið spennandi. Ég þurfti að hætta að vinna um tíma vegna þreytu og verkja og mátti ekki við neinu, þá fór allt í klessu og einkennin versnuðu og versnuðu. Ég hef skammast mín fyrir aumingjaskapinn og reynt að halda andliti af ótta við álit annarra.

Við vefjagigtina hef ég barist í mörg ár, eflaust fleiri en ég geri mér grein fyrir, en greininguna fékk ég fyrir u.þ.b. 10 árum og á þeim tíma voru mínir fordómar í garð vefjagigtar mjög miklir. Ég sagði pent „nei takk“ við lækninn minn þegar hann greindi mig, ég vildi ekki einhverja ruslgreiningu sem skellt væri á miðaldra kerlingar!

Það tók mig mörg ár að ná sátt við sjúkdóminn og læra að lifa með honum, læra að bæta lífsgæði mín og læra að vondu dagarnir verða betri ef ég er góð við mig.

Ég er verkjuð alla daga að einhverju leyti og orkan misgóð en góðu dagarnir verða fleiri þegar ég kem fram við mig á réttan hátt. Þó að ég sé ekki verkjalaus er ég mun verkjaminni og það er unaður.

Mig langar að deila með ykkur, þjáningarsystkinum mínum sem eruð með vefjagigt, þeim atriðum sem hafa auðveldað mér lífið. Þetta er nefnilega ekki kvennasjúkdómur, karlmenn fá líka vefjagigt.

Mín leið til aukinna lífsgæða:

Hreyfing: Ég stunda reglulega hreyfingu, annars versna verkirnir, en lykillinn var að læra að hreyfa mig eftir getu svo ég væri ekki ónýt í þrjá daga eftir hreyfinguna eins og áður. Ég hreyfi mig rólega, geng, lyfti og geri það sem ég hef gaman af, en rólega og ekki með of mikla þyngd. Nú er ég í vatnsleikfimi og finnst hún henta mér mjög vel, en ég verð alltaf að vera meðvituð því um leið og ég fer of geyst er ég að vinna gegn mér.

Hugleiðsla: Hugleiðsla er afar stór þáttur í minni vellíðan. Ég stunda jóga nidra og er mikill talsmaður þess. Jóga nidra er djúp hugleiðsla og hefur hjálpað mér svo mikið að ég fór og lærði að verða jóga nidra kennari og vinn í dag við að hjálpa fólki að ná slökun með viðurkenndum aðferðum.

Mataræði: Ég hef gert miklar breytingar á mataræði, þó enga öfga, ég trúi ekki á öfga. Ég borða reglulega, mikið af grænmeti og ávöxtum og hreint fæði, sneiði hjá unnum matvörum og sykri eins vel og ég get og ég finn að það hefur mikil áhrif á verkina.

Hvíld: Ég leyfi mér að gera ekki neitt, líka þegar allt er í drasli á heimilinu, og er hætt að þrífa í drep og taka út fyrir þrifin með þriggja daga verkjakasti.

Í raun, ef ég súmma þetta upp í eina setningu, þá hljómar hún svona:

Sýna sjálfri mér mildi og kærleika.

 
 
 

Comments


bottom of page