Klínísk dáleiðsla
Hugræn endurforritun er dáleiðslumeðferð sem mikið er talað um opinberlega núna. Hugræn endurforritun er samsett meðferð þar sem nýttar eru saman fjórar meðferðartegundir sem klínískir dáleiðarar læra.
Allar dáleiðslumeðferðir sem ég hef lært sem klínískur dáleiðari gefa góða virkni en rétt eins og með alla meðferðarvinnu er þetta samspil meðferðaraðila og meðferðarþega.
Engin töfrabrögð eða kraftaverkaolía.
Sem klínískur dáleiðari hef ég notið þeirra forréttinda að hjálpa fólki við að draga úr erfiðum einkennum, bæði andlegum og líkamlegum, en ég er ekki læknir og get því ekki lofað lækningu, enda segir í siðareglum klínískra dáleiðara að við greinum ekki fólk né veitum lækningu!
Ég hef náð mjög góðum árangri með því að nota klíníska dáleiðslu með mínum meðferðarþegum þegar kemur að andlegum áföllum, streitu, kvíða og líkamlegum einkennum eins og verkjum og svefnleysi.
Töluvert er um það að fólk komi til að styrkja sig andlega með það í huga að bæta árangur sinn, t.d. í íþróttum eða námi. Ég hef einnig verið svo heppin að fá að vinna með fólki sem er að takast á við fíknisjúkdóma og það hefur nýtt sér klíníska dáleiðslu bæði í því ferli að breyta venjum og ná tökum á fíkninni og til að byggja sig upp að meðferð lokinni. Einnig hafa aðstandendur nýtt sér meðferðarformið til að vinna úr erfiðum tilfinningum og styrkja sig.
Það er enginn efi í mínum huga um að klínísk dáleiðsla sé öflugt meðferðarform, enda hef ég sjálf nýtt mér það og fengið að verða vitni að stórkostlegum hlutum hjá meðferðarþegum. Samsett dáleiðslumeðferð er kröftug og sjálf hef ég þróað meðferð sem ég kalla „Skýjameðferð“. Hún hefur nýst einstaklega vel þegar kemur að því að losa um gömul mynstur, vondar minningar og tilfinningar sem ekki gagnast einstaklingnum og kveikja á góðum, uppbyggilegum tilfinningum sem nýtast til bættrar lífshamingju.
Þá má nefna að með því að nýta markþjálfun og klíníska dáleiðslu saman er komin blanda sem er ótrúlega kröftug. Þeir sem vilja hámarka árangur sinn á einhverju sviði, hvort sem er í íþróttum eða öðru, tala um að þetta sé „banvæn blanda“ að því leyti að hún sé svo öflug!
Á námskeiðinu mínu, Nýtt upphaf, frá streitu til kyrrðar, set ég saman hugmyndafræði klínískrar dáleiðslu, hugrænnar atferlismeðferðar, markþjálfunar og jóga nidra, auk þess sem ég nýti fræðslu sem byggð er á rannsóknum úr sálfræðinni. Það námskeið hefur verið árangursmælt og löngu sannað sig, enda seljast plássin hratt upp!



Comments