top of page


Leiðir til að sinna þér betur
Það er mikilvægt að sinna sjálfum sér vel og á þann hátt bera ábyrgð á andlegri og líkamlegri heilsu. Það er ekki sjálfselska að sinna sjálfum sér, nei, það er sjálfsmildi og það er nokkuð sem við þurfum öll á að halda. Í þeim mikla hraða sem við búum við í dag vill það oft gleymast að næra eigið sjálf. Hér koma þrjár einfaldar leiðir til að næra eigið sjálf og þar með hugsa vel um eigin heilsu. 1. Hreyfðu þig daglega: Ekki af því að þú þarft þess heldur af því að það er gott
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Feitan og ljótan
Hver þekkir ekki feituna og ljótuna? Ég þekki þessar systur af eigin raun og hef þekkt þær alltof lengi! Í fjölda ára hef ég unnið að því að útrýma þessum systrum úr lífi mínu og í dag hitti ég þær sem betur fer mjög sjaldan. Þær systur eru skaðvaldar og þess vegna ákvað ég að skrifa aðeins um þær, því það er algengt að fólk hitti þær… Þið vitið, þegar mikið er um mannamót og allir vilja vera sem fallegastir. Hverjar eru þær systur, feitan og ljótan, hvaðan koma þær og hver e
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Kvíðinn minn er minni
Herborg kom á námskeiðið Nýtt upphaf, frá streitu til kyrrðar, í september 2020 og þetta hafði hún að segja: Algjörlega stórkostlegt námskeið, ég lýk því á dásamlegan hátt. Mér líður betur og ég hef betri stjórn á sjálfri mér í aðstæðum sem ég lét sveifla mér mikið! Ég þekki sjálfa mig betur og bæði hlusta og hugsa betur um mig. Ég fékk „leyfi“ til að setja mig í fyrsta sæti í mínu lífi og hef svo sannarlega nýtt mér það og er fyrir vikið mun afslappaðri og ánægðari. Líkamleg
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read
Máttur hugans er gríðarlegur
Hugleiðsla hefur margsannað sig og verið rannsökuð fram og til baka. Sjálf skrifaði ég ritgerð á meistarastigi í HÍ um núvitundarhugleiðslu sem hluta af meðferðarformi og sú rannsóknarvinna sem ég lagðist í sýndi mér fram á gagnsemi þess að hugleiða og hversu máttugur hugurinn er. Ýmsar leiðir eru til þess að ástunda hugleiðslu og mín einlæga trú er sú að allir geti hugleitt, hver og einn þarf að finna sína leið. Sjálf er ég menntuð sem jóga nidra kennari og hef tekið þrjú fu
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read
Hlutverk aðstandenda
Að vera á hliðarlínunni þegar ástvinur kvelst vegna sjúkdóms eða vímuefnavanda er erfitt og flókið hlutverk. Algerlega vanmáttugur getur maður ekki gert neitt til þess að draga úr vanlíðan eða veita hvíld. Standa á hliðarlínunni og vera til staðar á uppbyggilegan og hvetjandi hátt. Sýna skilning og samúð, viðurkenna að sársaukinn er raunverulegur og hann ber að virða og samþykkja þó sár sé. Finna léttinn koma yfir þegar mesti broddurinn af sársaukanum hverfur hjá viðkomandi.
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read
Gildi eða slæm hegðun
Gildi segja til um hver þú ert og hvað þú vilt standa fyrir. Oft er fólk ekki meðvitað um gildi sín og stundum veit fólk ekki hvaða gildi það vill tileinka sér. Já, maður getur tileinkað sér góð gildi eða slæma hegðun. Hlutverk: Með því að skoða sig út frá þeim hlutverkum sem þú gegnir í lífinu er gott að spyrja: Hvaða gildi vil ég hafa að leiðarljósi? Til dæmis hlutverkið móðir. Hvaða gildi hefur þú að leiðarljósi í uppeldi barna þinna? Eru það gildi sem þú vilt innræta hjá
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Góð ráð til að grípa til og gera daginn betri
Suma daga vaknar maður bara illa upplagður og jafnvel með höfuðverk eða dagurinn byrjar á neikvæðri athugasemd frá yfirmanni eða einhverjum öðrum. Með öðrum orðum byrjar dagurinn þannig að það virðist sem allt sé á móti þér en ekki með þér í dag. Allir upplifa svona leiðindadaga en til eru ýmis ráð til þess að snúa deginum og flestallir eiga í fórum sínum verkfæri sem nýtast. Kíkjum aðeins í verkfæraboxið og sjáum hvað við getum gert til þess að eignast innstæðu í andlega ban
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Lífið er þitt
Lífið er stutt: Það er einhvern veginn þannig að maður áttar sig á að lífið er stutt þegar maður horfir á eftir einhverjum yfir móðuna miklu eða einhver sem er manni nákominn greinist með sjúkdóm. Með öðrum orðum þegar eitthvað verður þess valdandi að minna mann á að maður er ekki eilífur. Ég hef nokkuð oft fengið þessa áminningu um að lífið er stutt, já nokkrum sinnum! Samt hef ég alveg gleymt því og hagað mér eins og ég sé eilíf. Þegar ég tala um að haga mér eins og ég sé e
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read
Gróskuhugarfar eða skortshugsun
Gróskuhugsun / skortshugsun… Við markþjálfar tölum oft um grósku- eða skortshugsun. Gróskuhugarfar: Gróskuhugsun felur í sér að sjá möguleikana og virkilega efla aðra til þess að ná sínum árangri. Í gróskuhugsun er ekki ótti við að aðrir dafni eða hafi eitthvað af þér. Þvert á móti vill manneskja sem hefur tamið sér gróskuhugsun sjá allt og alla blómstra og er óhrædd við samkeppni því hún lítur svo á að nóg sé handa öllum 😉 Góður leiðtogi býr yfir gróskuhugsun og því fær han
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Iðkun þakklætis, verkfæri til vellíðunar
Það verður að segjast eins og er að þetta ár, 2020, hefur verið alveg með ólíkindum. Heill hellingur af áskorunum og erfiðum verkefnum. Það hefur einkennst af COVID-veirunni og baráttunni við hana, sem hefur sett samfélagið og heiminn allan á hvolf. Fólk missir vinnu, streitustig eykst og allskonar álag reynir á allar manneskjur, sama á hvaða aldri við erum. Ég mæli með þakklætisiðkun: Ég get sannarlega mælt með því að stunda þakklæti sér til hjálpar á erfiðum tímum. Það hljó
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Það býr kraftur innra með þér
Af hverju ættir þú að koma í markþjálfun? Af því að markþjálfi virkar eins og aðrir þjálfar, s.s. einkaþjálfi, þroskaþjálfi, handboltaþjálfi o.s.frv. Ég er þroskaþjálfi og markþjálfi sem gerir það að verkum að ég bý yfir vitneskju sem nýtist fólki óháð því hvort einhverjar raskanir eða fatlanir eru með í för 🙂 Sem þroskaþjálfi hef ég víðtæka þekkingu á fötlunum og röskunum, t.d. einhverfurófi, þroskahömlun, ADHD og svo framvegis. En kjarni þroskaþjálfans er þroskasálfræði og
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Klínísk dáleiðsla
Hugræn endurforritun er dáleiðslumeðferð sem mikið er talað um opinberlega núna. Hugræn endurforritun er samsett meðferð þar sem nýttar eru saman fjórar meðferðartegundir sem klínískir dáleiðarar læra. Allar dáleiðslumeðferðir sem ég hef lært sem klínískur dáleiðari gefa góða virkni en rétt eins og með alla meðferðarvinnu er þetta samspil meðferðaraðila og meðferðarþega. Engin töfrabrögð eða kraftaverkaolía. Sem klínískur dáleiðari hef ég notið þeirra forréttinda að hjálpa fó
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read
Jafnvægi, er það nauðsynlegt?
Nokkur orð um jafnvægi: Það hefur lífið kennt mér að jafnvægi er undirstaða þess að eiga inni á tilfinningabankanum þegar þörf er á úttekt! Ég hef ekki alltaf haft þessa vitneskju enda sjálf lent í örmögnun… jebb… Kulnun sem ekki er hlustað á verður að örmögnun sem er eiginlega kulnun + Eins og svo oft með það sem er erfitt er það ein mín mesta blessun að hafa upplifað þetta erfiða ástand örmögnunar með öllum þeim óþægindum og þreytu sem því fylgdi. Við tók tímabil þar sem ég
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Ekkert markmið er of stórt enginn draumur of stór
Wow… Ekkert smá stór yfirlýsing þessi fyrirsögn! Staðreyndin er sú að það er allt í lagi að setja sér risamarkmið eða dreyma risadrauma. Þetta er allt spurning um að komast þangað! Oftast er það óttinn sem hindrar manneskjuna í að framkvæma út fyrir þægindahringinn, eðlilega því það sem er fyrir utan hringinn er óþekkt stærð og innan hringsins er þetta örugga svæði þar sem þú veist hvernig allt er. Innan hringsins gerist ósköp fátt, meira svona lífið heldur áfram og einstaka
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read


Úr andlegu og líkamlegu gjaldþroti
Rétt eins og allar manneskjur hefur lífið gefið mér allskyns miserfið verkefni til að takast á við. Áföll og streita hafa áhrif á líkamsstarfsemina og lífsgæði almennt. Eftir mikla áfallahrinu 2014 var ég komin í andlegt og líkamlegt gjaldþrot. Ég leitaði mér hjálpar og hóf mína eigin uppbyggingu. Markmiðið var að ná heilbrigði, það var það eina sem raunverulega skipti mig máli. Þarna var ég verkjuð allan sólarhringinn, óheyrilega þreytt, algerlega þróttlaus og óhemju döpur.
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read
Streitustjórnun – forvörn gegn kulnun
Þegar streita fer yfir ákveðin mörk verður hún skaðleg bæði líkamlega og andlega og því er mikilvægt að mæta einstaklingum á mjúkan hátt bæði líkamlega og andlega. Streituhormónið kortisól stýrir streitustigi og það er eitt af því sem þarf að hafa í huga þegar unnið er að því að draga úr streitu, því ekki viljum við auka kortisólframleiðslu líkamans því það þýðir meiri streita! Streita getur verið hættuleg: Of hátt streitustig veldur líkamlegum einkennum eins og grunnum og hr
Kristin Snorrad
2 days ago0 min read
bottom of page