top of page

Hlutverk aðstandenda

2 days ago
2 min read

Að vera á hliðarlínunni þegar ástvinur kvelst vegna sjúkdóms eða vímuefnavanda er erfitt og flókið hlutverk.

Algerlega vanmáttugur getur maður ekki gert neitt til þess að draga úr vanlíðan eða veita hvíld. Standa á hliðarlínunni og vera til staðar á uppbyggilegan og hvetjandi hátt. Sýna skilning og samúð, viðurkenna að sársaukinn er raunverulegur og hann ber að virða og samþykkja þó sár sé. Finna léttinn koma yfir þegar mesti broddurinn af sársaukanum hverfur hjá viðkomandi. Halda utan um aðilann þegar áfallið skellur á og tilfinningarnar gefa eftir í sársaukafullan grát. Gráta með og samþykkja sársaukann á sama tíma og hughreystingarorðin renna af vörum manns.

Já, lífið er allskonar og ekki alltaf einhver glansmynd.

Að vera sáttur í eigin hlutverki, viðurkenna átökin og samþykkja stöðuna gerir mann sterkari og hæfari til þess að vera til staðar að öllu leyti og af heilindum.

Vera til staðar án þess að gefa ráð eða vita best og svo framvegis. Oft er það eina sem þörf er á hlýja án orða. Endalaus ráð geta virkað eins og versta áreiti. Það veit enginn raunverulega hvernig líðan annars er án þess að hafa prófað þau spor.

Hlutverk aðstandandans er flókið, hvort sem um er að ræða aðstandanda þess sem berst við alvarleg veikindi eða vímuefnafíkn.

Það er ótrúlega mikill tilfinningarússíbani sem á sér stað innra með þeim sem er á hliðarlínunni. Sársauki sem fylgir því að fylgjast með án þess að geta nokkru breytt í lífi annarrar manneskju. Sársauki móður að horfa á barn sitt þjást eða sonar að sjá föður. Aðstandendur eru mæður, feður, systur og bræður, allir eru aðstandendur einhvers.

Mikilvægt er að aðstandandinn sé meðvitaður um að sinna sjálfum sér vel.

Með því að sinna sér vel er hann í raun að gefa ástvini sínum þann allra besta og heilbrigðasta stuðninginn. Aðstandendahlutverkið getur reynt svo á að viðkomandi klárar út af tilfinningabankanum og fer í andlegt þrot. Með því að leita sér aðstoðar og finna þær leiðir sem henta sér til uppbyggingar líkama og sálar getur aðstandandinn lifað heilbrigðu og hamingjusömu lífi og verið til staðar á heilbrigðan hátt.

 
 
 

Comments


bottom of page