top of page

Leiðir til að sinna þér betur

2 days ago
1 min read

Það er mikilvægt að sinna sjálfum sér vel og á þann hátt bera ábyrgð á andlegri og líkamlegri heilsu.

Það er ekki sjálfselska að sinna sjálfum sér, nei, það er sjálfsmildi og það er nokkuð sem við þurfum öll á að halda.

Í þeim mikla hraða sem við búum við í dag vill það oft gleymast að næra eigið sjálf.

Hér koma þrjár einfaldar leiðir til að næra eigið sjálf og þar með hugsa vel um eigin heilsu.

1. Hreyfðu þig daglega:

Ekki af því að þú þarft þess heldur af því að það er gott og gaman. Finndu þér hreyfingu sem þér finnst skemmtileg, t.d. að ganga, hjóla, synda eða bara hvað sem er.

Það þarf bara að hreyfa sig skipulega í 30 mínútur á dag til að efla heilsuna og lífsgæðin.

2. Skapaðu þér morgunrútínu:

Þar sem þú átt 15 mínútur með sjálfri þér áður en amstur dagsins byrjar.

Notaðu þessar 15 mínútur í að vekja þig á þann hátt sem þér finnst gott, t.d. með hugleiðslu, teygjum, góðum kaffibolla eða sturtu. Bara hvað sem virkar fyrir þig.

3. Veldu þér holla millibita yfir daginn:

Þannig nærðu betri orku og líkaminn verður heilbrigðari. Hollt snarl eins og grænmeti, ávextir, hnetur og annað slíkt er tær snilld og þaðan kemur alvöru orka en ekki bara skyndiorka eins og af súkkulaðistykkinu.

Elskaðu þig og settu þig í fyrsta sæti. Það er gott fyrir þig og alla sem eru samferða þér í lífinu.

 
 
 

Comments


bottom of page