top of page

Gerðu óskaspjald

2 days ago
2 min read

Hefur þú heyrt um óskaspjald?

Jebb, þetta Secret-kjaftæði, þar sem þú dregur til þín það sem þig langar í. Ég er með smá fréttir af þessu!

Þetta er ekki kjaftæði, ÞETTA VIRKAR.

Ég hef gert mér svona spjöld í kringum áramót í nokkur ár og viti menn, það er alveg magnað hvað allt kemur til mín. Ekki allt í einu og alls ekki í þeirri röð sem ég vildi og ekki á mínum hraða, en það kemur.

Ætli það séu ekki svona 8 ár síðan ég gerði fyrsta spjaldið mitt og af því að ég hafði ekkert alltof mikla trú á þessu og þetta var bara verkefni á námskeiði sem ég var á, þá setti ég stóra drauminn minn fyrst á spjaldið: að fara á tónleika með Rolling Stones. Ég elska þá grúppu og langaði svo að sjá þá en var samt búin að gefa það frá mér. Ég meina, þeir eldri en sólin og ég á ömurlegum stað fjárhagslega og lífið ekkert nema átök. Ég setti svo ýmislegt annað á spjaldið, eins og ferðalög á staði sem mig óraði ekki fyrir að ég myndi ferðast til í þessu lífi.

Svo setti ég náttúrlega myndir af fullt af peningum og allskonar meira.

Ég fór fljótlega að upplifa eitt og annað sem ég setti á spjaldið. T.d. setti ég mynd af peysu á spjaldið og það furðulega gerðist að vinkona mín kom frá útlöndum nokkrum dögum seinna. Hún hafði séð peysu og fundist hún svo mikið ég að hún bara keypti hana og gaf mér!

Mér fannst þetta pínu magnað, því við erum ekki þannig að við séum að kaupa föt hvor á aðra. Fleira svona fór að gerast og ég fór að hafa meiri áhuga á þessum fræðum.

Gat verið að við gætum beðið alheiminn um eitthvað bara með því að setja út löngunina og trúa því að hann gefi? Ég meina, ég fékk án þess að trúa á þetta.

Ég ákvað að prófa þetta og lagði mig fram við að hugsa jákvætt, trúa því að ég ætti allt gott skilið og setti óskirnar mínar á spjaldið mitt sem ég hengdi með kennaratyggjói á vegginn í svefnherberginu.

Spjaldið var fyrir augum mínum alla daga og óskirnar tíndust inn hver af annarri og vá, þetta svínvirkar.

Það allra magnaðasta er að ég fór á síðasta ári á Rolling Stones-tónleika og þar með rættist stærsta óskin mín.

Ég hef ferðast hingað og þangað á staði sem ég setti á spjaldið. Það skemmtilegasta er að einhvern tímann setti ég mynd af geggjaðri strönd og þegar ég fór að skoða það spjald seinna fattaði ég að þetta var á Hawaii, en þangað fór ég óvænt á ráðstefnu!

Hvernig gerir maður svo þetta óskaspjald?

Mjög einfalt:

Stórt spjald úr kartonpappír, fullt af glanstímaritum og allskonar pennar og litir.

Svo er bara að klippa út myndir af því sem maður vill, skrifa niður óskirnar og njóta þess að eiga þessa stund með sjálfum sér. Það er líka gaman að gera þetta saman í hóp.

Eitt að lokum sem er mjög mikilvægt!

Vera þakklát, mjög þakklát, og opin fyrir því að taka við gjöfunum.

 
 
 

Comments


bottom of page