Góð ráð til að grípa til og gera daginn betri
Suma daga vaknar maður bara illa upplagður og jafnvel með höfuðverk eða dagurinn byrjar á neikvæðri athugasemd frá yfirmanni eða einhverjum öðrum.
Með öðrum orðum byrjar dagurinn þannig að það virðist sem allt sé á móti þér en ekki með þér í dag.
Allir upplifa svona leiðindadaga en til eru ýmis ráð til þess að snúa deginum og flestallir eiga í fórum sínum verkfæri sem nýtast.
Kíkjum aðeins í verkfæraboxið og sjáum hvað við getum gert til þess að eignast innstæðu í andlega bankanum svo við eigum auðveldara með að takast á við erfiðu dagana!
Hér koma nokkur einföld ráð sem flestallir geta styrkt hjá sér og nýtt sér:
Skelltu þér í sturtu.
Á slæmum degi er ótrúlega freistandi að liggja í rúminu með sængina yfir haus og velja að vera í eymdinni en betra er að fara í sturtu, hefja daginn og þvo af sér leiðindin. Þarna þarf smá sjálfsaga en þetta er jú einföld athöfn.
Talaðu við einhvern um líðan þína.
Ekki sitja ein/n með tilfinningar og hugsanir, orðaðu þær og fáðu speglun og hvatningu frá öðrum. Þannig situr þú ekki ein/n uppi með hugarangur og sekkur jafnvel dýpra í erfiðar tilfinningar. Einfalt en mikilvægt að velja sér uppbyggilegan aðila til að tala við.
Lokaðu á samskiptamiðla.
Ekki hanga á fréttamiðlum eða samfélagsmiðlum, þar er hætta á neikvæðu áreiti sem þú getur ekki stýrt en utan vefmiðla getur þú stýrt betur hverju þú hleypir að þér. Snilld að grípa í góða bók eða skapa eitthvað.
Stundaðu sjálfsrækt.
Sinntu þér vel, mættu þér í mildi. Leyfðu þér að taka tíma fyrir þig án samviskubits. Farðu í bíó, horfðu á mynd, farðu í göngu, bara eitthvað sem nærir þig. Kannski nærir þig að gera alls ekkert. Nauðsyn þess að hlaða sig er óumdeilanleg. Það má kveikja á sjónvarpi um miðjan dag eða hanga í baði ef það er gott fyrir þig. Þú átt eitt eintak af þér og það er þín ábyrgð að sinna því vel.
Farðu út í náttúruna.
Náttúran er heilandi og að draga inn ferskt loft er gott fyrir líkama og sál. Sjáðu fegurðina í náttúrunni, það gerir gott að njóta fegurðar. Fátt er betra en að ganga í náttúrunni og finna fyrir vindinum eða rigningunni og náttúruilminum sem fylgir. Ef þú átt hund er snilld að kippa honum með.
Stýrðu huganum.
Ekki festast í neikvæðum hugsunum yfir því sem hefur gerst. Taktu ákvörðun um að hefja daginn að nýju. Skrifaðu niður allt sem þú hefur gert vel, skrifaðu niður allt sem þú ert þakklát/ur fyrir. Það kemur í veg fyrir neikvæðan huga. Tær snilld að skella einhverri ofurhressandi tónlist á og trufla hugann eða horfa á eitthvað hrikalega fyndið. Hugurinn er nefnilega þannig að hann truflast auðveldlega.
Rifjaðu upp góðar minningar.
Skoðaðu myndaalbúm, hringdu í vin og ræddu skemmtilega minningu eða, enn betra, endurtaktu leikinn. Flest okkar gerðu einhver kjánastrik í æsku eða á unglingsárum, sum okkar eru enn að gera kjánastrik sem fá okkur til að brosa.
Hugleiddu.
Hugleiðsla er eitt öflugasta verkfærið til að styrkja sjálfan sig. Hugleiðsla dregur úr streitu og kvíða. Hugleiðsla styrkir þig innan frá og ótal margar ritrýndar rannsóknir sýna fram á breytta og betri heilastarfsemi hjá þeim sem hugleiða reglulega. Það er ekkert mál að hugleiða, það er til fullt af öppum og efni.
Þetta eru aðeins nokkur atriði en þau kveikja klárlega á fleiri atriðum. Njóttu lífsins, það er þitt.



Comments