
Nýtt upphaf, frá streitu til kyrrðar – á staðnum
Næsti hópur auglýstur síðar
Available spots
Service Description
Hópnámskeið á staðnum, einu sinni í viku í átta vikur, 90 mínútur í senn. Kristín sameinar klíníska dáleiðslu, hugræna atferlismeðferð, markþjálfun og jóga nidra, ásamt fræðslu sem byggir á rannsóknum. Unnið er í litlum hópi, hámark 8 þátttakendur. Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína um allt að 90% af námskeiðsgjaldinu. Meðaleinkunn þátttakenda: 9,6 af 10 í 30 umsögnum. „VÁ! Ég hef farið á hin og þessi námskeið í gegnum tíðina í tengslum við sjálfsvinnu en þetta toppar allt!“ – Rósa S., 42 ára „Þetta námskeið hefur gefið mér rosalega mikið. Ég er komin með verkfæri núna sem ég get nýtt mér heima til þess að slaka á þegar ég finn fyrir kvíðanum. Kristín er mikill fagmaður og maður hlakkar alltaf til þess að mæta í tímana.“ – Tanja Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur „Upplifði mig losna úr búri sem ég hef verið lokuð inni í til fjölda ára!“ – Jóhanna, 59 ára


Cancellation Policy
Afbóka þarf eða breyta tíma með minnst 24 klukkustunda fyrirvara. Ef eitthvað kemur upp á með styttri fyrirvara, hafðu samband í síma 862 1420 eða á fagvitund@fagvitund.is.
Contact Details
Mosfellsbær, Ísland
+354 862 1420
fagvitund@fagvitund.is