Toppárangur – Stefnumótun í eigin lífi 2027 (rafræn útgáfa)
Árið sem þú mótar, í takt við það sem skiptir þig máli. Toppárangur er verkefnabók fyrir öll sem vilja setja sér skýra stefnu fyrir árið 2027 án þess að fórna heilsunni, gleðinni eða sjálfum sér á leiðinni. Í bókinni eru: - Spurningar sem dýpka sjálfsþekkingu og valdefla - Verkefni um gildi, framtíðarsýn, styrkleika og markmið - Eflandi æfingar fyrir líkama og taugakerfi - Ársfjórðungaáætlun og mánaðarleg íhugun allt árið 2027 - 52 eflandi staðhæfingar og vikusíður Rafræn útgáfa: PDF-skrá, 99 blaðsíður í A5. Þú færð skrána senda strax eftir kaup. Hægt er að prenta hana út heima (á A4 með „fit to page“) eða skrifa beint í hana í spjaldtölvu. Kaupirðu til gjafar? Skráin berst þér strax og þú getur áframsent hana. Ef þú skrifar nafn og netfang viðtakanda í reitinn „Er þetta gjöf?“ sendi ég bókina líka til viðtakandans með kveðju frá þér, á þeim degi sem þú velur. Höfundur: Kristín Snorradóttir, þroskaþjálfi, ACC-vottaður markþjálfi og jóga nidra kennari.
