
Taugakerfisæfingar og jóga nidra – netnámskeið
Hefst 13. nóvember · sex föstudaga kl. 18:00 á Zoom
Available spots
Service Description
Ertu oft stressuð/stressaður, spennt/ur eða með hugann á fullri ferð? Þetta námskeið er stund fyrir þig til að hægja á, anda djúpt og endurhlaða líkama og huga, heima í stofu. Mörg stéttarfélög veita styrk sem hægt er að nýta upp í námskeiðsgjaldið. „Eftir að ég tók jóga nidra námskeið hjá Kristínu er ég komin með góð verkfæri til að tækla ME-sjúkdóminn sem ég er með. Fræðsla hennar um taugakerfið og bókstaflega allt sem getur sett það í flækju fannst mér mjög gagnlegt og ég lærði fullt. Að taka Zoom-námskeið fannst mér mjög gott því þá var ég heima og gat slakað enn betur á eftir tímann. Ég mæli 100% með Kristínu, nærvera hennar er svo góð og þægileg. Námskeiðið æðislegt.“ – Guðný Brynjólfs Í námskeiðinu færðu: – Taugakerfisæfingar sem róa taugakerfið, draga úr streitu og hjálpa þér að finna öryggi og innri ró. – Jóga nidra, djúpa slökun þar sem líkami og hugur endurnærast. – Stuttar og áhrifaríkar æfingar sem þú getur gert hvenær sem er, hvar sem er. Markmiðið er minni streita og kvíði, betri svefn og meiri orka, minni spenna í líkamanum og verkfæri sem styðja þig í daglegu lífi. Hagnýtt: – Sex föstudagar kl. 18:00–19:15 í beinni á Zoom, hefst 13. nóvember – Upptökur af öllum tímum, ef þú missir af – Aðgangur að öllu efni í 3 mánuði – Verð: 17.900 kr. (tæpar 3.000 kr. á tíma) Um Kristínu: Kristín Snorradóttir er jógakennari og jógaþerapisti með sérhæfingu í jóga nidra. Hún er einnig þroskaþjálfi, ACC-vottaður markþjálfi og klínískur dáleiðari. Eitt eintak af þér, það er dýrmætt.


Upcoming Sessions
Cancellation Policy
Afbóka þarf eða breyta tíma með minnst 24 klukkustunda fyrirvara. Ef eitthvað kemur upp á með styttri fyrirvara, hafðu samband í síma 862 1420 eða á fagvitund@fagvitund.is.
Contact Details
+354 862 1420
fagvitund@fagvitund.is
Mosfellsbær, Ísland